Tönn nr 4 fór í dag, eins og tönn nr 3 þá tók Ágústa hana sjálf. Í gær tókum við líka saumana sem þurfti að setja í hökuna fyrir nokkrum dögum síðan þegar Ágústa datt á leikskólanum. Saumatakan gekk betur en þegar saumarnir voru settir og fékk ég meira að segja að taka saumana.
update:
Þegar farið var að bursta tennurnar kom í ljós að það eru komnir að hálfu upp jaxlar líka beggjavegna niðri.

Ég er búin að koma upp myndaalbúmi á síðunni SmugMug. Ég vonast til að vera dugleg við að setja myndir þangað. Ég er með síðuna læsta en ef það er einhver sem langar að fá aðgang þá er annaðhvort hægt að finna mig á fb eða senda póst á tobbasn at gmail.com 

















